Deilt um staðsetningu nýrrar brottfararstöðvar í Reykjanesbæ
Bæjarstjóri telur að stöðin eigi að vera nær flugvellinum en margir íbúar hafa áhyggjur af nálægð við byggð.

Mikil umræða hefur skapast í Reykjanesbæ um fyrirhugaða brottfararmiðstöð fyrir útlendinga. Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri segir að mikilvægt sé að miðstöðin sé staðsett sem næst flugvellinum en núverandi áform um húsnæði þykja mörgum íbúum vera of nærri íbúabyggð. Málið er til meðferðar hjá yfirvöldum.

