Of hraður akstur ferðamanns orsakaði banaslys í Stafdal
Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur lokið skýrslu um banaslys sem varð á Seyðisfjarðarvegi þar sem hálka og hraði komu við sögu.

Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur gefið út skýrslu um banaslys sem varð í Stafdal á Seyðisfirði. Ökumaðurinn, sem var erlendur ferðamaður, ók of hratt miðað við aðstæður en mikil hálka og snjór voru á veginum þegar hann missti stjórn á bifreið sinni. Ökumaðurinn hafði haft ökuskírteini í fjögur ár en náði ekki að stjórna bílnum í erfiðum aðstæðum.

