Karl Gauti spyrst fyrir um mögulega heimför Sýrlendinga
Þingmaðurinn Karl Gauti Hjaltason vill fá svör frá stjórnvöldum um hvort fylgt verði fordæmi annarra Evrópuríkja varðandi endursendingar Sýrlendinga sem hér dvelja.

Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins, hefur lagt fram fyrirspurn um stöðu sýrlenskra flóttamanna á Íslandi. Hann bendir á að tæplega þúsund Sýrlendingar séu hér skráðir og mörg Evrópuríki hafi nú þegar hafið undurbúning að því að senda fólk aftur til öruggra svæða í Sýrlandi. Karl Gauti leggur áherslu á að stjórnvöld þurfi að hafa skýra stefnu í þessum málaflokki í takt við þróunina í nágrannalöndunum.



