Svíi vann 2,5 milljarða í Vikinglotto
Heppinn miðaeigandi í Svíþjóð var einn með fyrsta vinning í Vikinglotto og hlýtur hann tæplega 2,5 milljarða króna í sinn hlut.

Einn heppinn miðaeigandi í Svíþjóð var með allar tölur réttar í útdrætti kvöldsins í Vikinglotto. Vinningurinn hljóðar upp á rúmlega 17 milljónir evra, sem jafngildir tæplega 2,5 milljörðum íslenskra króna. Þetta er einn stærsti vinningur sem komið hefur í hlut eins einstaklings í sögu leiksins í Svíþjóð. Enginn Íslendingur var með fyrsta eða annan vinning að þessu sinni, en potturinn fyrir næsta útdrátt verður aftur lágmarksupphæð.



