Mannkynið að missa stjórn á gervigreind: Frumkvöðull varar við hættu
Yoshua Bengio, einn af frumkvöðlum gervigreindar, segir mannkynið vera að missa stjórn á tækninni og kallar eftir reglugerðum svipuðum þeim sem gilda um kjarnorkuvopn.
Kanadíski tölvunarfræðingurinn Yoshua Bengio, sem er talinn einn helsti brautryðjandi gervigreindar, segir mannkynið vera „að missa stjórnina“ á tækninni. Hann telur nauðsynlegt að setja strangar öryggisreglur sem minna á það alþjóðlega regluverk sem gildir um kjarnorkuvopn. Ótti við hliðarverkanir og hættur samfara gervigreind hefur aukist verulega undanfarnar vikur. Starfsmenn stórra tæknifyrirtækja hafa í vaxandi mæli sagt upp störfum og varað við því að hröð þróun tækninnar gæti haft ófyrirséðar afleiðingar.


