Manchester United og Coventry úr leik í deildabikarnum
Manchester United tapaði gegn Brighton á heimavelli og Coventry féll úr leik gegn Aston Villa í ensku deildarbikarkeppninni í kvöld.
Fjórir leikir fóru fram í ensku deildarbikarkeppninni í knattspyrnu í kvöld þar sem tvö úrvalsdeildarfélög féllu úr leik. Manchester United tapaði 3-2 fyrir Brighton á heimavelli sínum, Old Trafford, og Coventry laut í lægra haldi fyrir Aston Villa með þremur mörkum gegn einu. Þá vann Everton 1-0 sigur á Wolves og Fleetwood Town lagði Sheffield United með sama markamun. Þriðju umferðinni lýkur á morgun þegar Manchester City mætir Norwich.


