Kúabóndi verulega ósáttur við Matvælastofnun - Sektaður fyrir aldagamla venju
Bóndi sem sektaður var fyrir að binda naut á bása segir það aldagamla venju, en Matvælastofnun telur það brot á velferðarlögum.

Atvinnuvegaráðuneytið hefur staðfest sektarákvörðun Matvælastofnunar á hendur kúabónda fyrir brot gegn lögum um velferð dýra. Bóndinn var sektaður fyrir að nýta bása til að binda nautgripi sína, en slíkt er nú óheimilt samkvæmt reglugerð nema uppfyllt séu ströng skilyrði. Bóndinn heldur því fram að hér sé um að ræða venju sem hafi tíðkast í margar aldir og sé ósáttur við niðurstöðuna.


