Bíll varð alelda í Kópavogi
Eldur kom upp í bíl við Fífuhvammsveg í Kópavogi í kvöld og breiddist yfir í annan bíl. Slökkvilið réð fljótt niðurlögum eldsins.
Tilkynning barst slökkviliði höfuðborgarsvæðisins um alelda bíl við Fífuhvammsveg í Kópavogi skömmu fyrir hálf ellefu í kvöld. Einn dælubíll var sendur á vettvang og tókst slökkviliðsmönnum fljótlega að slökkva eldinn. Eldurinn náði að breiðast út í annan bíl sem stóð nærri þeim sem fyrst kviknaði í. Ekki er vitað um eldsupptök en íbúar þurfa ekki að hafa áhyggjur af reyk frá atvikinu.

