Róttækar breytingar myndu jafna atkvæðavægi milli kjördæma
Tillögur um stórfjölgun jöfnunarsæta myndu jafna atkvæðavægi milli kjördæma en hafa um leið mikil áhrif á fjölda þingmanna. Sérstaklega myndi fækka í Norðausturkjördæmi.
Tillögur um stórfjölgun jöfnunarsæta myndu jafna atkvæðavægi milli kjördæma en hafa um leið mikil áhrif á þingmannafjölda þeirra. Hafsteinn Birgir Einarsson, doktor í stjórnmálafræði, segir breytingarnar róttækar, sérstaklega fyrir Norðausturkjördæmi þar sem þingmönnum myndi fækka úr tíu í sjö. Markmiðið er að tryggja jafnara vægi atkvæða óháð búsetu.

