Fórnarlömb Jeffrey Epstein kæra til að fá upplýsingar um barnaklám í eigu hans
Fórnarlömb Jeffrey Epstein hafa höfðað dómsmál gegn dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna fyrir að láta þau ekki vita hvort þau séu á tugþúsundum myndbanda af barnaklámi sem fundust í hans eigu.

Tvö fórnarlömb Jeffrey Epstein hafa kært dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna fyrir að láta ekki tugi fórnarlamba vita að þau kæmu fram á myndum og myndböndum í stóru safni Epsteins af barnaklámi. FBI hefur verið að fara yfir tugþúsundir myndbanda og telur að mikill fjöldi þeirra sýni ólöglegan kynferðisbrot í garð barna, en ráðuneytið hefur að mestu hunsað fórnarlömbin til þessa.



