Fídjieyjar lýsa yfir neyðarástandi vegna HIV-smita
Yfirvöld á Fídjieyjum hafa lýst yfir neyðarástandi vegna mikillar fjölgunar HIV-smita sem tengist aukinni neyslu metamfetamíns í landinu.

Yfirvöld á Fídjieyjum hafa lýst yfir neyðarástandi vegna mikillar fjölgunar HIV-smita sem tengist aukinni neyslu metamfetamíns í landinu. Talið er að einn af hverjum 60 fullorðnum í landinu búi nú við HIV-smit. Heilbrigðisráðherra landsins, Dr. Ratu Atonio Lalabalavu, segir að hefðbundin viðbrögð dagi ekki lengur til að takast á við þennan faraldur, sem hann lýsir sem neyðarástandi.



