„Hvers vegna er verið að refsa okkur?“
Sendlar hjá Wolt mótmæltu við skrifstofur fyrirtækisins í morgun vegna lækkunar á greiðslum fyrir hverja sendingu sem hefur skert tekjur þeirra verulega.
Wolt nýtur mikilla vinsælda á Íslandi en um sex hundruð sendlar starfa hjá fyrirtækinu. Hluti þeirra safnaðist saman við skrifstofur fyrirtækisins í morgun til að mótmæla launalækkunum. Gheorhhe Miha, einn bílstjóranna, segir að dagstekjurnar hafi lækkað úr 35-40 þúsund krónum niður í 20-25 þúsund vegna þess að greiðsla fyrir hverja sendingu fór úr 1000 krónum niður í 600.

