„Erum að spila fyrir allt Þórs samfélagið“
Daniel Birkelund, þjálfari Þórs, var hæstánægður eftir sigur sinna manna á erkifjendunum í KA í æsispennandi handboltaleik á Akureyri.

Daniel Birkelund, þjálfari Þórs, var glaður í bragði eftir sætan sigur gegn erkifjendunum í KA en lokatölur urðu 31-35 í KA heimilinu á Akureyri. Hann sagði sigurinn mikilvægan fyrir allt Þórs-samfélagið og mikil stemning hafi verið í leikmannahópnum eftir þennan mikilvæga sigur.


