Íslendingar fundu vísbendingar um nýtanlegan jarðhita á Tenerife
Starfsfólk Reykjavik Geothermal hefur fundið lofandi vísbendingar um jarðhita á Tenerife sem gæti markað upphaf fyrstu jarðhitavirkjunar Spánar.

Risaverkefni Reykjavik Geothermal á Tenerife gæti markað upphaf fyrstu jarðhitavirkjunar Spánar. Verkefnið var kynnt spænskum stjórnvöldum á miðvikudag en vísbendingar um nýtanlegan hita fundust á miðeyjunni. Þetta er talið stórt skref í átt að sjálfbærri orkuframleiðslu á eyjunni.



