Tónleikaferðalag Ed Sheeran í uppnámi
Upphitunaratriði hafa dregið sig út úr tónleikaferðalagi Ed Sheeran til að sýna rapparanum Macklemore stuðning, en honum var vikið úr ferðalaginu vegna ummæla um Palestínu.

Tónleikaferð Ed Sheeran um Norður- og Suður-Ameríku er í miklu uppnámi eftir að ákveðið var að reka rapparann Macklemore sem upphitunaratriði. Ástæðan er sögð vera ummæli rapparans á sviði til stuðnings Palestínu. Í kjölfarið hafa öll önnur upphitunaratriði hætt við þátttöku í samstöðuskyni, sem setur framkvæmd tónleikanna í óvissu.


