Gamlir íslenskir peningaseðlar seldust á milljónir
Sjaldgæfir íslenskir peningaseðlar frá 19. og 20. öld seldust samtals fyrir 84 milljónir króna á uppboði í Svíþjóð í gær.
Mikill áhugi var á uppboði sænska fyrirtækisins Postiljonen þar sem 74 sjaldgæfir íslenskir peningaseðlar voru boðnir upp. Hæsta verðið, um 5,6 milljónir króna, fékkst fyrir safn sem innihélt seðla frá Landsjóði Íslands frá árinu 1885. Einnig seldust ríkisdalir frá 18. öld og sjaldgæfur fimmtíu króna seðill á háu verði, þrátt fyrir að vera nokkuð slitinn.

