Kjósverjar krefjast umhverfismats vegna nýs hænsnabús
Íbúar í Kjós krefjast þess að mats á umhverfisáhrifum verði gert vegna áforma Matfugls ehf. um nýtt hænsnabú að Tindstöðum á Kjalarnesi. Sjö umsagnir bárust vegna málsins í skipulagsgátt.

Mikil andstaða virðist vera meðal íbúa í Kjós gegn fyrirhuguðum áformum Matfugls ehf. um að reisa nýtt hænsnabú að Tindstöðum á Kjalarnesi. Sjö umsagnir hafa verið sendar inn í skipulagsgáttina þar sem krafist er ítarlegs umhverfismats áður en framkvæmdir hefjast. Aðallega er lýst yfir áhyggjum af áhrifum búsins á nánasta umhverfi og lífsgæði íbúa á svæðinu, þar á meðal í Miðdal og við Kiðafell.
