Fasteignamarkaðurinn heldur áfram að kólna
Íbúðaverð hækkar hóflega en fasteignasalar segja markaðinn kólna samkvæmt nýrri skýrslu HMS.

Íbúðaverð heldur áfram að hækka hóflega á milli mánaða en fasteignamarkaðurinn fer kólnandi að mati fasteignasala. Þetta kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS). Þrátt fyrir verðhækkanir bendir ýmislegt til þess að dregið hafi úr umsvifum á markaðnum.


