Lögreglan lýsir eftir tveimur piltum
Lögreglan á Vesturlandi leitar að tveimur unglingspiltum sem fóru frá heimilum sínum í Borgarnesi þann 13. september síðastliðinn.

Lögreglan á Vesturlandi lýsir eftir tveimur piltum á unglingsaldri, þeim Szymon Suchecki og Cezary Kobiela. Þeir fóru frá heimilum sínum í Borgarnesi sunnudaginn 13. september og hefur ekki spurst til þeirra síðan. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir þeirra eru beðnir um að hafa samband við lögreglu.

