Bandarísk landsliðskona stefnir læknum eftir hjartastopp á vellinum
Savannah DeMelo, leikmaður bandaríska landsliðsins í knattspyrnu, stefnir sjúkrahúsi og tveimur læknum eftir að hún fékk hjartastopp í leik.

Savannah DeMelo, miðjumaður kvennalandsliðs Bandaríkjanna, hefur höfðað mál gegn sjúkrahúsi og tveimur læknum. Ástæðan er hjartastopp sem hún fékk inni á vellinum á síðasta ári. Hún telur að læknarnir hafi sýnt af sér gáleysi við greiningu og meðferð á undirliggjandi vandamálum hennar.



