Sýrlenskur maður fann bókastafla sem hann faldi fyrir 15 árum
Abu Bilal byggði leynivegg á heimili sínu í Sýrlandi til að vernda bækurnar sínar fyrir stjórn Assads og fann þær loks aftur á dögunum.

Sýrlenskur maður að nafni Abu Bilal hefur fundið safn bóka sinna sem hann faldi á bak við vegg fyrir fimmtán árum. Hann byggði vegginn til að koma í veg fyrir að stjórnarherinn myndi eyðileggja eða leggja hald á bækurnar á meðan stríðið stóð sem hæst. Það var mikil gleðistund þegar hann sá bækurnar aftur heilar á húfi.

