Þvertaka fyrir að Karl konungur hafi sagt að Díana prinsessa myndi gleymast fljótt
Talsmenn bresku konungsfjölskyldunnar neita því að Karl konungur hafi haldið því fram að Díana prinsessa myndi fljótt gleymast eftir dauða hennar.
Charles Spencer, bróðir Díönu prinsessu, hélt því fram nýlega að Karl konungur hefði kastað því fram skömmu eftir andlát hennar árið 1997 að hún myndi fljótlega gleymast í huga almennings. Talsmenn konungsfjölskyldunnar hafa nú gefið út yfirlýsingu þar sem þessu er harðlega neitað. Spencer hefur oft verið gagnrýninn í garð fjölskyldunnar en þetta nýjasta innlegg hefur valdið titringi í Buckingham-höll.



