„Er mér óhætt hér?” – Sjúklingaöryggi fatlaðs fólks
17. september er alþjóðlegur dagur sjúklingaöryggis og í tilefni dagsins er vakin athygli á mikilvægi þess að tryggja öryggi fatlaðs fólks í heilbrigðiskerfinu.

Sjúklingaöryggi er grundvallaratriði í allri heilbrigðisþjónustu og skiptir alla máli. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) hefur helgað 17. september ár hvert þessu mikilvæga málefni. Sérstök áhersla er lögð á að fatlað fólk geti treyst því að það sé óhætt í höndum heilbrigðisstarfsfólks. Hugtakið er víðfeðmt og nær yfir allt fullnægjandi aðgengi að upplýsingum yfir í rétta lyfjagjöf og verklag. Mikilvægt er að halda áfram að bæta kerfið svo allir sjúklingar, óháð fötlun, fái bestu og öruggustu þjónustuna sem völ er á.

