Drónaárásir Írans á gagnaver Amazon ollu varanlegu gagnatapi
Amazon hefur staðfest að gögn viðskiptavina hafi glatast varanlega eftir að drónaárásir Írans ollu miklum skemmdum á gagnaverum í Barein og Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Hálfu ári eftir drónaárásir Írana á gagnaver Amazon í Mið-Austurlöndum hefur tæknirisinn staðfest að hluti af gögnum viðskiptavina hafi glatast fyrir fullt og allt. Skemmdirnar á gagnaverunum í Barein og Sameinuðu arabísku furstadæmunum voru svo umfangsmiklar að AWS kerfin náðu ekki að endurheimta öll gögnin. Amazon viðurkennir að tjónið hafi farið fram úr því sem hönnun kerfanna gerir ráð fyrir að þau þoli. Þetta er í fyrsta skipti sem stríðsátök hafa valdið svo alvarlegu og varanlegu gagnatapi hjá annarri eins skýjaþjónustu og Amazon Web Services.



