Ný bráðamatsdeild Landspítalans tekin í notkun: Álag minnkar en vandinn varir
Heilbrigðisráðherra afhenti í dag lykla að nýrri bráðamatsdeild við Landspítalann sem á að létta á álagi. Forstjóri spítalans varar þó við að enn gæti fólk þurft að liggja á göngum.
Landspítalinn hefur tekið í notkun nýja bráðamatsdeild sem hýst er í gámeiningum við bráðamóttökuna í Fossvogi. Deildin rúmar tuttugu sjúklinga sem þurfa greiningu og meðferð í allt að þrjá sólarhringa. Alma Möller heilbrigðisráðherra segir deildina vera mikilvægan plástur á húsnæðisvanda spítalans á meðan beðið er eftir nýjum meðferðarkjarna. Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, fagnar viðbótinni en bendir á að vegna skorts á hjúkrunarrýmum sé ekki hægt að lofa því að sjúklingar þurfi aldrei framar að liggja á göngum við erfiðar aðstæður.


