Karl Th. Birgisson blaðamaður er látinn
Blaðamaðurinn og rithöfundurinn Karl Th. Birgisson lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í fyrrinótt, 62 ára að aldri.
Karl Th. Birgisson blaðamaður er látinn, 62 ára að aldri. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í fyrrinótt. Karl vann við fjölmiðlun og önnur ritstörf stærstan hluta starfsævinnar. Hann ritstýrði meðal annars helgarblaðinu Pressunni, tímaritinu Heimsmynd og vefnum Eyjunni. Karl stýrði einnig vinsælum útvarps- og sjónvarpsþáttum og skrifaði fjölda bóka um þjóðfélagsmál. Hann starfaði einnig fyrir Samfylkinguna og Alþýðuflokkinn á sínum tíma. Karl lætur eftir sig þrjú uppkomin börn.


