Ísland og EES-ríki þurfa að fylgjast grannt með útþenslu ESB
Hugmyndir um að veita Kanada sérstaka aukaaðild að Evrópusambandinu gætu haft áhrif á EES-samstarfið.
Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, og Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, hafa rætt um mögulega aukaaðild Kanada að Evrópusambandinu. Gunnar Þór Pétursson lagaprófessor telur að Ísland og önnur EES-ríki þurfi að vera vel á verði þar sem slíkur samningur gæti breytt forsendum EES-samstarfsins. Samstarfið myndi meðal annars snúa að gervigreind, loftslagsmálum og mikilvægum jarðefnum.


