Austfirskir sveitarstjórar gæddu sér á SAF-köku
Forsvarsmenn austfirskra sveitarfélaga fengu afhenta köku frá Samtökum ferðaþjónustunnar (SAF) í dag.

Sævar Guðjónsson, sitjandi í stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar, afhenti forsvarsmönnum sveitarfélaga á Austurlandi köku ferðaþjónustunnar við hátíðlega athöfn í Neskaupstað. Tilefnið er blómleg ferðaþjónusta á svæðinu og gott samstarf milli atvinnugreinarinnar og sveitarfélaganna. Viðstaddir voru bæjarstjórar Fjarðabyggðar og Múlaþings ásamt forsvarsmönnum Vopnafjarðar og Fljótsdalshrepps.

