Gagnrýnir bótagreiðslur til erlendra ríkisborgara
Snorri Másson gagnrýnir mikla aukningu á bótagreiðslum til erlendra ríkisborgara og kallar eftir auknu eftirliti með kerfinu.
Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, kallaði eftir svörum frá dómsmálaráðherra um fjárhagsaðstoð sveitarfélaga við erlenda ríkisborgara. Snorri benti á að útgjöld Tryggingastofnunar vegna örorku- og endurhæfingarlífeyris til þessa hóps hafi aukist verulega á síðustu 15 árum. Hann nefndi dæmi um sakborning í alvarlegu sakamáli sem hafi þegið bætur árum saman án þess að hafa verið á vinnumarkaði.


