Ísland sagt órjúfanlegur hluti af Evrópufjölskyldunni á fundi með Benelux-ríkjunum
Utanríkisráðherra fundaði með Benelux-ríkjunum í dag. Rætt var um samstarf yfir Atlantsála, Úkraínustríðið og tengsl Íslands við Evrópu.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tók í dag á móti utanríkisráðherrum Benelux-ríkjanna í utanríkisráðuneytinu. Á fundinum voru samskipti Íslands við Evrópusambandið og sérstaklega samstarfið við Belgíu, Holland og Lúxemborg helstu umræðuefnin. Auk þess ræddu ráðherrarnir stöðuna í Úkraínu og mikilvægi þess að standa saman gegn innrás Rússa. Utanríkisráðherrar Benelux-ríkjanna lýstu því yfir að Ísland væri „órjúfanlegur hluti af Evrópufjölskyldunni“ og lögðu áherslu á áframhaldandi gott samstarf yfir Atlantshafið.


