Segir tillögur um ný kosningalög vera örvæntingarfulla tilraun Viðreisnar
Jens Garðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir tillögur starfshóps um breytt kosningalög og telur þær vera tilraun Viðreisnar til að auka vægi Reykjavíkursvæðisins á kostnað landsbyggðarinnar.
Jens Garðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokk í Norðausturkjördæmi, gefur lítið fyrir nýbirtar tillögur starfshóps um breytingar á kosningalögum. Hann telur tillögurnar, sem fela meðal annars í sér fjölgun jöfnunarsæta og færslu þingsæta frá norðri til suðvesturs, vera „örvæntingarfulla tilraun“ Viðreisnar til að sækja fylgi og völd til höfuðborgarsvæðisins þar sem flokkurinn standi höllum fæti á landsbyggðinni. Jens kallar eftir þverpólitískri samstöðu í stað tillagna frá hópum sem hann telur hliðholla ákveðnum sjónarmiðum.



