Gagnrýnir Ingu Sæland fyrir kröfu um afsögn á sjúkrabeði
Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður, sakar Ingu Sæland um ófyrirleitni fyrir að krefjast afsagnar hans á meðan hann lá á sjúkrahúsi eftir alvarlega hjartaaðgerð.

Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, fer hörðum orðum um Ingu Sæland í nýju viðtali. Hann segir hana hafa gengið freklega fram þegar hún krafðist þess að hann léti af embætti á sama tíma og hann barðist fyrir lífi sínu á sjúkrahúsi eftir erfiða hjartaaðgerð. Hann segir framkomuna hafa verið ómannúðlega.


