Stríðsþreyttir Rússar ganga að kjörborðinu
Kosið er til nýs þings í Rússlandi á sama tíma og þjóðin glímir við eldsneytisskort, drónaárásir og ótta við frekari herkvaðningu vegna stríðsins í Úkraínu.

Rússar ganga nú að kjörborðinu til að kjósa nýtt þing á tímum mikillar óvissu og kvíða. Stríðsþreyta er farin að segja til sín, en þjóðin hefur upplifað eldsneytisskort, tíðar drónaárásir og orðróm um nýja herkvaðningu. Stjórnvöld í Kreml fylgjast grannt með kosningunum og vaxandi kröfum um friðarviðræður.



