Eigandi varar við Toppstöðinni: „Alvarleg staða“
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur telur stöðuna í Toppstöðinni alvarlega eftir eldsvoðann. Eigandinn varar við því að fólk fari inn í húsið.

Eigandi Toppstöðvarinnar segir stöðuna alvarlega eftir að hafa skoðað húsnæðið með heilbrigðiseftirlitinu og tryggingafélaginu í fyrsta skipti eftir eld. Mikið hefur borið á mannaferðum inni í húsinu sem er varasamt.


