ÍBV sótti stig í greipar Fram

ÍBV vann þriggja marka sigur á Fram í Olísdeild karla í handbolta í kvöld eftir að hafa verið fimm mörkum undir í hálfleik.

RÚV Íþróttir17. september 2026 kl. 20:13
ÍBV sótti stig í greipar Fram
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

ÍBV varð í kvöld fyrsta liðið til að leggja Fram að velli í Olísdeild karla í handbolta á þessu tímabili. Leikurinn fór fram í Úlfarsárdal en honum hafði verið frestað í gær vegna ófærðar. Framarar leiddu með fimm mörkum í hálfleik, 19-14, en Eyjamenn sneru taflinu við í síðari hálfleik. ÍBV jafnaði metin eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik og tryggði sér að lokum þriggja marka sigur, 33-30. Bæði lið eru nú með fjögur stig, tveimur stigum á eftir toppliði Hauka.

Heimild:
Birt á Fréttavakt: 17. september 2026 kl. 20:13
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Tengdar fréttir