Bristol bannar auglýsingar á vörum sem menga mikið

Borgaryfirvöld í Bristol hafa bannað auglýsingar á vörum sem hafa mikil umhverfisáhrif, svo sem hraðtísku og farartækjum sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti.

Heimildin17. september 2026 kl. 21:28
Bristol bannar auglýsingar á vörum sem menga mikið
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Borgaryfirvöld í bresku borginni Bristol hafa bannað auglýsingar á öllum vörum sem menga mikið og hvetja til óhóflegrar neyslu. Bannið nær meðal annars til hraðtísku og farartækja sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti. Bristol er fyrsta sveitarfélagið í Bretlandi til að innleiða slíkt bann, en það nær þó aðeins til auglýsingaskilta og strætóskýla í eigu borgarinnar. Antónío Guterres, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, hefur áður kallað eftir banni við auglýsingum frá „guðfeðrum loftslagsglundroða“.

Heimild:
Birt á Fréttavakt: 17. september 2026 kl. 21:28
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Tengdar fréttir