Sérfræðingar SÞ telja Bandaríkin hafa framið stríðsglæpi í Íran
Sérfræðingar á vegum Sameinuðu þjóðanna telja ástæðu til að ætla að loftárásir Bandaríkjanna á skóla og íþróttamiðstöð í Íran flokkist sem stríðsglæpir.

Mannréttindasérfræðingar Sameinuðu þjóðanna segja að rökstuddur grunur leiki á að Bandaríkin hafi gerst sek um stríðsglæpi í loftárásum sínum í febrúar síðastliðnum. Árásirnar beindust að barnaskóla í Minab og íþróttamannvirki í Lamerd. Bandarísk yfirvöld hafa ekki gengist við því að hafa gert þessar árásir, sem kostuðu fjölmarga saklausa borgara lífið.



