Íslenski barinn á Tenerife flytur í nýtt húsnæði
Hinn kunni Íslendingabar Nostalgía á Tenerife flytur í nýtt húsnæði um mánaðamótin eftir tíu ára sögu á sama stað.

Talsverðar breytingar eru framundan hjá Íslendingasamfélaginu á Tenerife. Barinn Nostalgía, sem rekin er af hjónunum Herdísi Hrönn Árnadóttur og Sævari Lúðvíkssyni, mun flytja í nýtt húsnæði undir lok mánaðarins. Staðurinn hefur verið starfræktur í tíu ár á sama stað og skipað stóran sess í félagslífi Íslendinga á eyjunni. Nýja staðsetningin er þar sem Cafe Epoca var áður til húsa. Eigendurnir horfa spenntir til framtíðarinnar í nýju og bættu umhverfi.


