Flugdólgurinn rýfur þögnina: „Guð minn góður. Þvílíkt klúður“

Hinn 67 ára gamli Layne Lundeen segist ekkert muna eftir því þegar hann var yfirbugaður og festur með límbandi um borð í flugvél.

DV17. september 2026 kl. 22:46
Flugdólgurinn rýfur þögnina: „Guð minn góður. Þvílíkt klúður“
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Bandaríkjamaðurinn Layne Lundeen, sem er 67 ára gamall, kom nýverið fyrir dómara í Maryland eftir eftirminnilega uppákomu um borð í flugvél American Airlines. Lundeen var handtekinn og ákærður eftir að hafa sýnt af sér ofbeldisfulla hegðun sem varð til þess að áhöfn og farþegar þurftu að yfirbuga hann og festa hann niður í sæti sitt með límbandi. Lundeen sjálfur segist vera miður sín yfir atvikinu en heldur því fram að hann muni ekkert eftir því sem gerðist. Hann lýsti hneykslan sinni á sjálfum sér fyrir dómi og kallaði atvikið „þvílíkt klúður“.

Heimild:
Birt á Fréttavakt: 17. september 2026 kl. 22:46
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Tengdar fréttir