Dómsmálaráðuneytið braut lög við synjun á ættarnafni
Umboðsmaður Alþingis telur að dómsmálaráðuneytið hafi brotið lög þegar það synjaði konu um að taka upp ættarnafn ömmu sinnar.

Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að dómsmálaráðuneytið hafi ekki fylgt lögum þegar það staðfesti synjun Þjóðskrár á umsókn konu um nafnabreytingu. Konan vildi taka upp ættarnafn látinnar ömmu sinnar, en ráðuneytið taldi skilyrði ekki uppfyllt, sem Umboðsmaður telur nú ranga lagatúlkun.

