Bandaríkin hleypa sendinefnd Írans á fund SÞ í New York
Bandaríkin munu hleypa forseta og utanríkisráðherra Írans til New York til að sækja fundi hjá Sameinuðu þjóðunum.

Bandarísk stjórnvöld munu heimila sendinefnd frá Íran að sækja fundi Sameinuðu þjóðanna í New York. Heimildir herma að Masoud Pezeshkian, forseti Írans, og Abbas Araghchi utanríkisráðherra séu á meðal þeirra sem fengið hafa vegabréfsáritun. Þetta gerist á sama tíma og stríðsátökin á svæðinu hafa staðið yfir í rúmt hálft ár.


