Íslandi sýnt algjört virðingarleysi með kortabirtingu
Maxime Prevót, utanríkisráðherra Belgíu, segir Íslandi sýnt algjört virðingarleysi eftir að Donald Trump birti kort þar sem landið var sýnt sem hluti Bandaríkjanna.

Mikla athygli vakti þegar Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, birti kort sem sýndi Ísland sem hluta af Bandaríkjunum. Maxime Prevót, utanríkisráðherra Belgíu, gagnrýndi þetta harðlega á blaðamannafundi í utanríkisráðuneytinu í dag og sagði að með þessu væri íslensku fullveldi og þjóðinni sýnt algjört virðingarleysi.

