Handtekin fyrir dýraníð í Flórída eftir að eiginmaðurinn kom að henni
Kona á fertugsaldri í Flórída hefur verið handtekin fyrir gróft dýraníð gagnvart heimilishundinum eftir að eiginmaður hennar stóð hana að verki.
Lögreglan í Flórída hefur handtekið konu á fertugsaldri sem sökuð er um gróft dýraníð. Eiginmaður konunnar kom að henni þar sem hún var að misnota heimilishund þeirra hjóna kynferðislega. Samkvæmt frétt breska blaðsins The Daily Star lýsti lögreglan atvikinu sem einu af þeim fáu skiptum á ferlinum þar sem vanir lögreglumenn urðu orðlausir yfir alvarleika málsins.



