Tæplega 50 látnir í Nígeríu eftir neyslu áfengis sem talið er mengað metanóli
Að minnsta kosti 48 manns hafa látist í suðurhluta Nígeríu eftir að hafa drukkið heimalagað áfengi sem talið er innihalda stórhættulegt metanól.

Neysla á heimalöguðu áfengi er algeng í Nígeríu, sérstaklega í dreifbýli þar sem það er ódýrara og eftirlit lítið. Að minnsta kosti 48 manns hafa látist og um 100 aðrir eru undir læknishendi eftir að hafa neytt drykkjarins, að sögn yfirvalda á fimmtudag. Banji Ajaka, heilbrigðisfulltrúi í Ondo-ríki, sagði að tilfelli hefðu verið tilkynnt í Odigbo og Irele. Alls er talið að 182 hafi orðið fyrir áhrifum.



