Drengirnir fundnir heilir á húfi
Tveir drengir sem lýst var eftir á Vesturlandi fyrr í dag eru fundnir og eru þeir heilir á húfi að sögn lögreglu.

Drengirnir tveir, Szymon Suchecki og Cezary Kobiela, sem lýst hafði verið eftir í dag eru fundnir heilir á húfi. Lögreglan á Vesturlandi staðfesti þetta í tilkynningu og þakkaði fyrir aðstoðina við leitina. Málið endaði farsællega en mikill viðbúnaður var við leitina fyrr í dag þar til vísbendingar leiddu lögreglu á rétta braut.


