Ráðherrar kynntu nýtt innviðafélag fyrir fjárfestum
Nýtt innviðafélag ríkisins, Göng og brú, hélt kynningardag í Hörpu fyrir alþjóðlega fjárfesta sem hluta af útboðsferli félagsins á EES-svæðinu.

Nýtt innviðafélag ríkisins, Göng og brú, hélt í dag kynningar- og markaðsdag í Hörpu. Viðburðurinn er liður í útboðsferli félagsins á Evrópska efnahagssvæðinu. Meðal þátttakenda voru innviðaráðherra og forstjóri félagsins, sem kynntu tækifæri tengd stórum innviðaframkvæmdum á Íslandi fyrir mögulegum fjárfestum.


