Forstjóri Landspítala óttast stöðnun vegna fjárlaga
Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans hefur blendnar tilfinningar til nýrra fjárframlaga og segir að þau haldi ekki í við aukna þjónustuþörf.

Ný fjárframlög í fjárlagafrumvarpinu vekja blendnar tilfinningar hjá Runólfi Pálssyni, forstjóra Landspítalans. Hann telur ljóst að fjárframlög til spítalans hafi ekki fylgt eftir þeirri miklu samfélagslegu þjónustuaukningu sem hefur átt sér stað. Runólfur varar við því að þessi þróun geti leitt til stöðnunar í starfsemi spítalans ef ekki verður brugðist við.


