Auto ehf. þarf ekki lengur að greiða dagsektir
Heilbrigðisnefnd hefur hætt dagsektum á hendur Auto ehf. þar sem úrbætur á lóð fyrirtækisins þykja loks miða í rétta átt eftir langa bið.
Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra hefur hætt að leggja dagsektir á partasöluna Auto ehf. að Setbergi, þar sem tiltekt á lóðinni þykir nú miða í rétta átt. Fyrirtækinu hafði verið gert að fjarlægja lausamuni og farga spilliefnum, en heildarfjárhæð áfallinna sekta nemur um 34 milljónum króna.


