Kanadískur hershöfðingi bítst um yfirmannsstöðu hjá NATO
Jennie Carignan gæti orðið fyrsta konan til að stýra hernaðarnefnd NATO ef hún sigrar þýskan keppinaut sinn í kosningu um helgina.

Jennie Carignan, hershöfðingi í Kanada, bítst nú um eina af æðstu stöðum innan NATO, stjórnarformennsku í hernaðarnefnd bandalagsins. Ef hún nær kjöri verður hún fyrsta konan til að gegna þessu mikilvæga embætti. Carignan keppir við þýska hershöfðingjann Carsten Breuer, en kosið verður með leynilegri atkvæðagreiðslu á laugardaginn. Sigur Myndi marka tímamót fyrir Kanada og auka vægi landsins innan bandalagsins, sérstaklega í ljósi viðleitni stjórnvalda í Ottawa til að styrkja tengslin við Evrópu á þessum óvissutímum.

