Pólland telur Pútín undirbúa árás á NATO-land
Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir að Rússar gætu reynt að láta árás líta út fyrir að vera slys til að lama viðbrögð NATO.
Pólska ríkisstjórnin telur að Rússar séu að skipuleggja dróna- eða eldflaugaárás á land innan NATO. Pútín muni að öllum líkindum reyna að fela ásetninginn til að tefja fyrir samstöðu bandalagsins.


